Fara í efni

Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði hafs- og vatnarannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Stofnunin heyrði undir matvælaráðuneytið.

Meðal hlutverka Hafrannsóknastofnunar er að veita stjórnvöldum og hagsmunaaðilum ráðgjöf og gefa umsagnir um nýtingu á auðlindum í sjó og ferskvatni á grundvelli sjálfbærniviðmiða og nýtingarstefnu.

SFASDFASDFASDFASDFASDFASDFSADFADFASFASDFASDFASDFASDFASDFASDFASDFSADFASDFASFSADFASDFAS

Hafrannsóknastofnun er stjórnsýslunni til ráðgjafar á sínu verksviði og veitir ráðgjöf um sjálfbæra nýtingu auðlinda í sjó og ferskvatni

Ráðgjöf um nýtingu lifandi auðlinda

Veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar og Alþjóðahafrannsóknarráðsins (ICES) byggir á alþjóðlega viðurkenndum viðmiðum um varúðarnálgun og markmiðum um hámarksafrakstur. Hafrannsóknastofnun, með aðkomu ICES í sumum tilvikum, veitti ráðgjöf til stjórnvalda um aflamark á alls 33 nytjastofnum árið 2024.

Ráðgjöf tengd ferskvatni snýr mest að ráðgjöf um sjálfbæra nýtingu fiskistofna og lágmörkun á áhrifum framkvæmda.

Stofnunin sinnir einnig annarri ráðgjöf svo sem um mati á áhrifum framkvæmda, eldi í sjó og á landi og verndarsvæði í sjó.

Umsagnir

Hlutverk Hafrannsóknastofnunar er að veita lögboðnar umsagnir og vera Matvælaráðuneyti og öðrum aðilum innan stjórnsýslunnar til ráðgjafar. Lögbundnar umsagnir Hafrannsóknastofnunar árið 2024 voru 209 talsins.

Auk lögbundinna umsagna berast stofnunni ár hvert fjölmörg erindi þar sem kallað er eftir ráðgjöf eða upplýsingum er varða vistkerfi hafs og vatna.