Árið 2025 markaði tímamót í sögu Hafrannsóknastofnunar. Þá var nýja rannsóknaskipið Þórunn Þórðardóttir HF 300 tekið í notkun og um leið lauk nær 55 ára farsælum ferli Bjarna Sæmundssonar HF 30, sem hafði verið burðarás íslenskra hafrannsókna frá árinu 1970.
Með endurnýjun skipakostsins hefur rannsóknaaðstaða stofnunarinnar tekið stórt framfaraskref. Hafrannsóknastofnun rekur nú tvö fullbúin rannsóknaskip, Árna Friðriksson HF 200 og Þórunni Þórðardóttur HF 300, sem gegna lykilhlutverki í rannsóknum á hafinu umhverfis Ísland.
Skipin sinna fjölbreyttum verkefnum, þar á meðal vistfræðirannsóknum, stofnmælingum, kortlagningu hafsbotns, fiskmerkingum og þróun veiðarfæra. Þau eru undirstaða þeirrar gagnaöflunar sem veiðiráðgjöf og rannsóknastarf stofnunarinnar byggja á.


Þórunn Þórðardóttir HF 300
Þórunn Þórðardóttir HF 300 var afhent Hafrannsóknastofnun 13. mars 2025. Skipið er 70 metra langt og 13 metra breitt tvíorkurannsóknaskip sem búið er rafknúnum skrúfum og öflugum rafhlöðum. Sú tækni bætir orkunýtingu skipsins og dregur úr umhverfisáhrifum rekstrarins.
Við hönnun skipsins var lögð sérstök áhersla á að skapa fyrsta flokks rannsóknaaðstöðu. Rannsóknabúnaður, vinnurými og tæknilausnir voru hönnuð með þarfir nútíma hafrannsókna að leiðarljósi og gera skipið vel í stakk búið til fjölbreyttra verkefna á komandi áratugum.
Skipið hóf rannsóknastarf nánast samstundis. Aðeins nokkrum dögum eftir afhendingu hélt það í sinn fyrsta leiðangur og tók þátt í árlegri stofnmælingu botnfiska á Íslandsmiðum.
Þórunn Þórðardóttir var smíðuð hjá Astilleros Armon í Vigo á Spáni. Heildarkostnaður við smíðina nam um fimm milljörðum króna, sem var innan samþykktra fjárheimilda.
Nafngift skipsins
Skipið er nefnt eftir Þórunni Þórðardóttur (1925–2007), frumkvöðli í íslenskum hafrannsóknum og fyrstu íslensku konunni sem lauk háskólamenntun í sjávarlíffræði.
Þórunn lagði grunn að rannsóknum á frumframleiðni í hafinu umhverfis Ísland og var meðal fyrstu sjávarlíffræðinga sem beittu geislakolsaðferð til að mæla frumframleiðni svifþörunga. Hún starfaði nær allan sinn starfsferil hjá Hafrannsóknastofnun og hafði afgerandi áhrif á þróun íslenskra hafrannsókna.
Fyrir framlag sitt til vísinda og samfélags hlaut hún meðal annars heiðursviðurkenningu Lýðveldissjóðs Alþingis.
Nýtt rannsóknaskip Þórunn Þórðardóttir HF 300 var tekið í notkun árið 2025 og um leið lauk nær 55 ára farsælum ferli Bjarna Sæmundssonar HF 30, sem hafði verið burðarás íslenskra hafrannsókna frá árinu 1970.



![]()

