Fara í efni

Mannauður og starfsþróun

Mannauðurinn er mikilvægasta auðlind stofnunarinnar og forsenda þess að hún geti sinnt hlutverki sínu sem leiðandi rannsókna- og ráðgjafarstofnun.

Hjá stofnuninni starfar öflugur hópur starfsfólks sem býr yfir mikilli fagþekkingu og metnaði. Menntunarstig er hátt og margir sérfræðingar stofnunarinnar eru meðal fremstu sérfræðinga á sínu sviði. Á bak við rannsóknir, ráðgjöf og vöktun Hafrannsóknastofnunar stendur fjölbreyttur hópur sérfræðinga og starfsfólks með víðtæka þekkingu á hafi, vötnum og lífríki Íslands.

Hlutverk starfsfólks eru ólík en öll róa í sömu átt með framtíðarsýn stofnunarinnar að leiðarljósi.


Á bak við rannsóknir, ráðgjöf og vöktun stendur fjölbreyttur hópur sérfræðinga með víðtæka þekkingu á hafi, vötnum og lífríki Íslands. Hlutverkin eru ólík en öll róa í sömu átt með framtíðarsýn stofnunarinnar að leiðarljósi.

Áhersla í mannauðsmálum árið 2025 var í samræmi við framtíðarsýn stofnunarinnar og markmið ríkisins um faglegan og eftirsóknarverðan vinnustað. Sérstök áhersla var lögð á að styðja stjórnendur, efla starfsþróun, styrkja samstarf og skapa starfsumhverfi þar sem fólk getur vaxið í starfi og nýtt hæfni sína til fulls.

Mannauðssvið sinnir heildstæðri mannauðsstjórnun sem nær meðal annars til ráðninga, starfsþróunar, fræðslu, kjaramála, vinnuumhverfis, heilsu og öryggis. Markmiðið er að skapa umgjörð sem styður fagmennsku, vellíðan og árangur starfsfólks.

 

Menningarvegferð

Árið 2025 var unnið markvisst að menningarvegferð Hafrannsóknastofnunar. Verkefnið er leitt af forstjóra og mannauðsstjóra og byggir á virkri þátttöku starfsfólks í mótun þeirrar vinnustaðamenningar sem stofnunin vill standa fyrir.

Markmið menningarvegferðarinnar er að skapa sjálfbæra vinnustaðamenningu sem styður stefnu Hafrannsóknastofnunar og þar sem fólki líður vel og er ánægt með stjórnun og starfsanda.

Áhersla var lögð á að efla liðsheild, styrkja samstarf þvert á svið og skapa vinnuumhverfi þar sem traust, virðing og fagmennska eru leiðarljós.

Samhliða var unnið að þróun stjórnenda og starfsfólks með áherslu á sjálfþekkingu, samskipti og leiðtogafærni. Menningarvegferðin hefur þegar skilað fjölmörgum umbótaverkefnum sem starfsfólk hefur sjálft komið að og styðja áframhaldandi þróun vinnustaðarins.

Heilsa, starfsánægja og vellíðan

Hafrannsóknastofnun leggur ríka áherslu á að skapa vinnuumhverfi sem styður við heilsu, öryggi og vellíðan starfsfólks. Góð samskipti, gagnkvæm virðing og opin umræða eru lykilforsendur þess að fólk geti notið sín í starfi og lagt sitt af mörkum til áframhaldandi þróunar stofnunarinnar. Starfsfólk er hvatt til að tjá hug sinn, setja fram hugmyndir, spyrja spurninga og rýna til gagns.

Á árinu var stefna stofnunarinnar um einelti, kynbundna og kynferðislega áreitni og annað ofbeldi (EKKO) endurskoðuð til að tryggja skýr viðbrögð og öruggt starfsumhverfi.

Starfsfólki stendur til boða árleg heilsufarsmæling, aðgangur að þjónustu sérfræðinga í gegnum Velferðartorg stofnunarinnar og fjölbreyttir styrkir sem styðja við heilsu og vellíðan, meðal annars vegna líkamsræktar, vistvænna samgangna og gleraugnakaupa. Þá er lögð áhersla á heilnæmt fæði á vinnustaðnum.

Viðburðir

Öflugt félagslíf er mikilvægur þáttur í starfsmenningu Hafrannsóknastofnunar. Á árinu stóðu bæði stofnunin og starfsmannafélagið fyrir fjölbreyttum viðburðum sem efldu samheldni, samstarf og góðan starfsanda.

Meðal hápunkta ársins voru Hafró-leikarnir og hátíðleg móttaka nýja rannsóknaskipsins Þórunnar Þórðardóttur HF 300. Auk þess voru haldin árshátíð, jólasamkoma og fjölmargir smærri viðburðir. Hversdagurinn var reglulega brotinn upp með ýmiss konar uppákomum sem styrktu tengsl starfsfólks, efldu samstöðu og studdu við öfluga liðsheild.