Fara í efni

Öflugt samstarf innanlands og á alþjóðavettvangi er ein af grunnforsendum rannsóknastarfs Hafrannsóknastofnunar. Með virku samstarfi við háskóla, rannsóknastofnanir og alþjóðleg vísindanet styrkir stofnunin þekkingargrunn sinn, þróar rannsóknaraðferðir og tryggir að rannsóknir og ráðgjöf standist alþjóðlegar kröfur.

Starfsfólk tekur árlega þátt í fjölmörgum vinnuhópum, rannsóknaverkefnum og sérfræðinetum þar sem unnið er að þróun þekkingar, vöktun hafs og vatna og sjálfbærri nýtingu auðlinda. Samstarfið felur meðal annars í sér þátttöku í alþjóðlegum rannsóknaleiðöngrum, vinnu í sérfræði- og vinnuhópum, ráðstefnum og öðrum samstarfsvettvangi sem tengjast vöktun nytjastofna, vistkerfa hafs og vatna og ráðgjöf um sjálfbæra nýtingu.

Starfsfólk tekur árlega þátt í fjölmörgum vinnuhópum, rannsóknaverkefnum og sérfræðinetum þar sem unnið er að þróun þekkingar, vöktun hafs og vatna og sjálfbærri nýtingu auðlinda. 

 

Alþjóðlegt samstarf

Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) er mikilvægasti samstarfsvettvangur Hafrannsóknastofnunar. Árið 2025 tóku sérfræðingar stofnunarinnar þátt í 48 af um 141 vinnuhópi ráðsins. Til samanburðar áttu aðrar íslenskar stofnanir fulltrúa í 11 vinnuhópum.
Í flestum vinnuhópum sátu einn til tveir sérfræðingar frá Hafrannsóknastofnun, en í sumum fleiri. Kynjahlutfall þátttakenda var nær jafnt; 51% karlar og 49% konur.
Auk ICES tekur Hafrannsóknastofnun virkan þátt í starfi fjölmargra alþjóðlegra stofnana og samstarfsvettvanga sem móta rannsóknir, ráðgjöf og stjórnun auðlinda í Norður-Atlantshafi.


Evrópuverkefni og annað alþjóðlegt rannsóknasamstarf

Þátttaka Hafrannsóknastofnunar í alþjóðlegum rannsóknaverkefnum hefur aukist jafnt og þétt á síðustu árum. Árið 2025 voru 13 rannsóknaverkefni, styrkt af Evrópusambandinu, í gangi á mismunandi stigum.

Verkefnin styrkja alþjóðlegt samstarf stofnunarinnar, skapa ný tækifæri til þekkingarsköpunar og gera sérfræðingum kleift að taka þátt í þróun nýrra rannsóknaraðferða og lausna á sameiginlegum áskorunum.

Yfirlit yfir virk Evrópuverkefni er birt á heimasíðu stofnunarinnar.

Auk verkefna sem styrkt eru af Evrópusambandinu tók Hafrannsóknastofnun þátt í fjölmörgum öðrum alþjóðlegum rannsóknaverkefnum með stuðningi meðal annars frá Rannís og norrænum rannsóknasjóðum.

Innlent samstarf

Hafrannsóknastofnun á í víðtæku samstarfi við rannsóknastofnanir, háskóla og aðrar stofnanir um land allt. Samstarfið stuðlar að öflugri þekkingarsköpun, eflir rannsóknir og styður við menntun nýrrar kynslóðar vísindafólks.

Meðal helstu samstarfsaðila eru Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Háskólasetur Vestfjarða, Matís, Fiskistofa, Matvælastofnun (MAST), Umhverfisstofnun, Veðurstofa Íslands, Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur víðs vegar um landið.

Samstarf Hafrannsóknastofnunar og Háskóla Íslands er sérstaklega umfangsmikið. Stofnunin kemur meðal annars að meistaranámi í fiskifræði og skyldum greinum með skipulagi náms og kennslu. Einn starfsmaður sinnir skipulagningu og kennslu við Háskóla Íslands og auk hans kemur fjöldi sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar að kennslu. Fjölmargir sérfræðingar stofnunarinnar taka þátt í kennslu og leiðbeina nemendum í meistara- og doktorsnámi.

Starfsfólk Hafrannsóknastofnunar sinnir einnig stundakennslu við háskóla og leiðbeinir meistara- og doktorsnemum.

 

Erlent samstarf 2025