Fara í efni

Rekstraryfirlit

Á árinu 2025 námu heildartekjur Hafrannsóknastofnunar 6.331,5 m.kr. en rekstrargjöld 6.567,2 m.kr. Afkoma fyrir fjármagnsliði var því neikvæð um 235,7 m.kr.

Í rekstrargjöldum er meðal annars færð 89,7 m.kr. krafa sem gerð hefur verið á hendur skipasmíðastöðinni vegna verkábyrgðar við smíði rannsóknaskipsins Þórunnar Þórðardóttur.

Áætlað hafði verið að afkoma ársins yrði neikvæð um 256,7 m.kr., þar sem gert var ráð fyrir að nýta uppsafnaða jákvæða afkomu fyrri ára. Að teknu tilliti til afkomu ársins og útgjalda vegna nýsmíði Þórunnar Þórðardóttur varð afkoman því 110,7 m.kr. betri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

Eigið fé stofnunarinnar var jákvætt um 72,2 m.kr. í árslok 2025.

Fjárfestingar

Til ráðstöfunar í fjárfestingar voru alls 462 m.kr., að teknu tilliti til fjárveitinga, ónýttra fjárfestingarheimilda frá fyrri árum, sölu bifreiða vegna rafvæðingar samgöngutækja og 144 m.kr. morgungjafar til kaupa á rannsóknarbúnaði fyrir Þórunni Þórðardóttur.

Fjárfestingar ársins námu 206,6 m.kr. og því stóðu eftir 255,4 m.kr. í ónýttum fjárfestingarheimildum í árslok.

Helsta skýringin á lægri fjárfestingum en áætlað var er að útboð á rannsóknarbúnaði fyrir Þórunni Þórðardóttur bar ekki árangur og tafði því innkaupaferlið.

Upplýsingatækni

Árið 2025 var lögð áhersla á að efla upplýsingaöryggi og endurnýja upplýsingatækniinnviði Hafrannsóknastofnunar. Netbúnaður og netkerfi voru uppfærð, ný lykilorðastefna innleidd, VPN-þjónusta bætt og reglulegar veikleikaskannanir framkvæmdar. Jafnframt var flutningi útstöðva yfir á Windows AD-lén að mestu lokið og netbúnaður endurnýjaður, meðal annars um borð í rannsóknaskipinu Árna Friðrikssyni.

Hugbúnaðarteymi stofnunarinnar hélt áfram þróun stafrænna lausna fyrir rannsóknastarf. Gagnagrunnar voru endurskipulagðir og áfram unnið að uppbyggingu gagnagrunna um náttúrufar hafsins til að styrkja skráningu líffræðilegrar fjölbreytni og bæta nýtingu rannsóknargagna.