Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, er ein stærsta rannsóknastofnun landsins. Höfuðstöðvar stofnunarinnar eru að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði en þar að auki heldur stofnunin úti átta starfstöðvum vítt og breitt um landið, þar á meðal tilraunaeldisstöð í Grindavík, og tveimur rannsóknaskipum. Stofnunin tók til starfa árið 2016 í núverandi mynd og innir fjölbreyttum verkefnum sem skilgreind eru í lögum nr. 112/2015 en meginhlutverk stofnunarinnar er að stuðla að sjálfbærri nýtingu á auðlindum í hafi, ám og vötnum.
Stofnunin sinnir fjölbreyttum hlutverkum sem eru skilgreind í lögum nr. 112/2015 en meginhlutverk stofnunarinnar er að stuðla að sjálfbærri nýtingu á auðlindum hafs, áa og vatna. Vöktunarverkefni eru lykilþáttur í starfsemi stofnunarinnar en einnig eru þar stundaðar fjölbreyttar rannsóknir sem ýmist má flokka sem grunnrannsóknir eða þjónusturannsóknir. Þá hefur stofnunin mikilvægu hlutverki að gegna við ráðgjöf og umsagnir.
Vöktunarverkefni eru lykilþættir starfseminnar en þar eru einnig stundaðar fjölbreyttar rannsóknir sem ýmist má flokka undir grunnrannsóknir eða þjónusturannsóknir. Stofnunin gegnir jafnframt mikilvægu hlutverki við ráðgjöf og umsagnir.
Haf og fiskrannsóknir á Íslandi eiga sér langa sögu.
Lög um Hafrannsóknastofnun voru sett árið 1965 og fimmtíu árum síðar samþykkti Alþingi lög um sameiningu Hafrannsóknastofnunar og Veiðimálastofnunar, stofnunar sem á sér einnig merka sögu og rekja má aftur til ársins 1945

Starfsstöðvar Hafrannsóknastofnunar árið 2023
Höfuðstöðvarnar eru í Hafnarfirði. Aðrar starfsstöðvar eru á Hvanneyri, Ísafirði, Hvammstanga, Akureyri, Neskaupstað, Vestmannaeyjum, Árborg og Grindavík.
Níu starfsstöðvar og tvö rannsóknarskip
Starfsmenn Hafrannsóknastofnunar voru 204 talsins í árslok 2023 á níu starfsstöðvum vítt og breitt um landið. Flest, eða 143, starfa í höfuðstöðvunum í Hafnarfirði en aðrar starfsstöðvar eru fiskeldisstöð stofnunarinnar í Grindavík (4), Ísafjörður (6), Hvanneyri (3), Akureyri (2), Hvammstangi (2), Selfoss (2), Neskaupstaður (2) og Vestmanneyjar (1). Stofnunin heldur einnig úti tveimur rannsóknarskipum með 39 manns í áhöfn, þar af eru 29 í áhöfn Árna Friðrikssonar og 14 í áhöfn Bjarna Sæmundssonar.
Skipurit Hafrannsóknastofnunar
Skipurit Hafrannsóknastofnunar
Rannsóknarsvið Hafrannsóknastofnunar 2023 voru botnsjávarsvið, uppsjávarsvið, umhverfissvið og ferskvatns- og eldissvið. Stoðsviðin voru fjármál og rekstur, mannauður og svið gagna og miðlunar.
![]() |
![]() |
Framkvæmdastjórn Hafrannsóknastofnunar 2023
Með breyttu skipuriti 2022 urðu til sjö stöðu gildi sviðsstjóra í framkvæmdastjórn Hafrannsóknastofnunar, sjá neðar. Um mitt ár 2023 lauk Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir, sviðsstjóri botnsjávarsviðs, störfum og tók Jónas Páll Jónasson við hennar stöðu.
Jónas Páll Jónasson, sviðsstjóri botnsjávarsviðs.
Guðni Guðbergsson, sviðsstjóri ferskvatns- og eldissviðs.
Hrönn Egilsdóttir, sviðsstjóri umhverfisviðs.
Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri uppsjávarsviðs.
Harpa Þrastardóttir, sviðsstjóri sviðs gagna og miðlunar.
Guðmundur I. Bergþórsson, sviðsstjóri sviðs fjárm´ála og rekstrar.
Berglind Björk Hreinsdóttir, sviðsstjóri mannauðssviðs
Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar.